Stjúpi spilaði á munnhörpu og gítar, |
|
systir mín sló taktinn á við þrjá. |
|
Ég söng, mamma gamla heyrði ekkert |
|
en með varalestri vissi’ hún hvað gekk á. |
|
|
Þessi hljómsveit var það sem við lifðum fyrir |
|
og hún var líka okkur eina tekjulind. |
|
En hún líktist engri venjulegri hljómsveit |
|
því augu gamla stjúpa voru blind. |
|
|
|
Stjúpi og mamma treystu á hvort annað. |
|
|
Örkuml þeirra gerði bæði sterk. |
|
|
Mamma gamla ók fjölskyldubílnum |
|
|
en stjúpi samdi texta og tónverk. |
|
|
Oftast nær við áttum heima í tjaldi |
|
og við fluttum sífellt stað úr stað. |
|
Samt minnist ég þess ekki að við sveltum, |
|
mömmu hagsýni kom í veg fyrir það. |
|
|
|
Stjúpi og mamma treystu á hvort annað. |
|
|
Örkuml þeirra gerði bæði sterk. |
|
|
Mamma gamla ók fjölskyldubílnum |
|
|
en stjúpi samdi texta og tónverk. |
|
|
Ekkert veit ég um hvernig þau kynntust |
|
ég held ég hafi aldrei heyrt það nefnt. |
|
En kannski hefur einhver hjálpað til þess, |
|
Guð blessi þann sem hefur að því stefnt. |
|
|
Faraldur tók heyrnina frá mömmu, |
|
stjúpi fæddist ei með neina sjón. |
|
En mamma þurfti mann sem hún gat skilið, |
|
kannski varð það best þau stjúpi yrðu hjón. |
|
|
|
Stjúpi og mamma treystu á hvort annað. |
|
|
Örkuml þeirra gerði bæði sterk. |
|
|
Mamma gamla ók fjölskyldubílnum |
|
|
en stjúpi samdi texta og tónverk. |
|