Þegar ég var lítil var ég voða feimin oft |
|
og væri einhver ókunnugur skaust ég upp á loft. |
|
En ef að ég var úti, þegar gest að garði bar, |
|
ég geystist upp á hlöðuburst og settist niður þar. |
|
|
|
Komdu niður, kvað hún amma. |
|
|
Komdu niður, sögðu pabbi' og mamma. |
|
|
:,: Komdu niður, komdu niður. |
|
|
Komdu niður, sungu öll í kór. :,: |
|
|
Svo stækkaði ég meira og þá varð ég voða kát |
|
og veslings pabba' og mömmu oft ég setti hreint í mát. |
|
Ég klifraði og hentist yfir hvað sem fyrir var, |
|
ég hoppaði' upp á skólaþak og settist niður þar. |
|
|
|
Komdu niður, kvað hún amma. |
|
|
Komdu niður, sögðu pabbi' og mamma. |
|
|
:,: Komdu niður, komdu niður. |
|
|
Komdu niður, sungu öll í kór. :,: |
|
|
En seinna verð ég stærri og það verður gaman þá |
|
og víst er það að margt þið fáið þá til mín að sjá, |
|
þá ætla ég nú upp í tunglið strax að fá mér far |
|
að finna karlinn skrítna, sem að á víst heima þar. |
|
|
|
Komdu niður, kveður amma. |
|
|
Komdu niður, segja pabbi' og mamma. |
|
|
Komdu niður, komdu niður. |
|
|
Komdu niður, syngja öll í kór. |
|