Hann elskaði þilför, hann Þórður, |
|
og því komst hann ungur á flot. |
|
Og hann kunni betur við Halann |
|
en hleinarnar neðan við Kot. |
|
Hann kærði sig ekkert um konur, |
|
en kunni að glingra við stút, |
|
og tæki ’ann upp pyttlu er töf var á löndun, |
|
hann tók ’ana hvíldarlaust út. |
|
|
|
Og þá var hann vanur að segja til svona: |
|
|
„Ja, sjómennskan er ekkert grín. |
|
|
Þó skyldi ég sigla um eilífan aldur, |
|
|
ef öldurnar breyttust í vín. |
|
|
Þó skyldi ég sigla um eilífan aldur, |
|
|
ef öldurnar breyttust í vín. |
|
|
Ja, sjómennskan, ja, sjómennskan, |
|
|
ja, sjómennskan er ekkert grín. |
|
|
Ja, sjómennskan, ja, sjómennskan, |
|
|
ja, sjómennskan er ekkert grín.“ |
|
|
Og þannig leið ævin hans Þórðar |
|
við þrældóm og vosbúð og sukk. |
|
Loks kvaddi hann lífið eitt kvöldið |
|
þeir kenndu það of miklum drukk. |
|
En oft þegar sjóhetjur setjast |
|
að sumbli og liðkast um mál, |
|
þá tæma þeir ölkollu honum til heiðurs |
|
og hrópa af fögnuði skál. |
|
|
|
Og þá var hann vanur að segja si svona |
|
|
„Já sjómennskan er ekkert grín.“ |
|
|
:,: „Þó skyldi ég sigla um eilífan aldur, |
|
|
ef öldurnar breyttust í vín.“:,: |
|
|
:,: „Já sjómennskan, já sjómennskan, |
|
|
já sjómennskan er ekkert grín.“:,: |
|