Það var um kvöld eitt að Kötu ég mætti. |
|
Hún var að koma af engjunum heim. |
|
Það var í ágúst að áliðnum slætti |
|
og nærri aldimmt á kvöldunum þeim. |
|
|
Hún var svo ung eins og angandi rósir. |
|
Ég hafði aldrei séð hana fyrr. |
|
Um vanga dönsuðu lokkarnir ljósir |
|
og augun leiftruðu þögul og kyrr. |
|
|
|
Hlýtt ég tók í hönd á Kötu, |
|
|
horfði’ í augun djúp og blá. |
|
|
Gengum síðan burt af götu, |
|
|
geymdi okkur náttmyrkrið þá. |
|
|
En þegar eldaði aftur og birti |
|
í hjarta ákafan kenndi ég sting. |
|
Og fyrir augum af angist mig syrti. |
|
Hún var með einfaldan giftingarhring. |
|
|
Hún var með einfaldan giftingarhring. |
|