|
|
Þú komst í hlaðið á hvítum hesti, |
|
þú komst með vor í augum þér. |
|
Ég söng og fagnaði góðum gesti |
|
og gaf þér hjartað í brjósti mér |
|
Ég söng og fagnaði góðum gesti |
|
og gaf þér hjartað í brjósti mér |
|
|
Ég heyri álengdar hófadyninn, |
|
ég horfi langt á eftir þér. |
|
Og bjart er alltaf um besta vininn |
|
og blítt er nafn hans á vörum mér. |
|
Og bjart er alltaf um besta vininn |
|
og blítt er nafn hans á vörum mér. |
|
|
Þó líði dagar og líði nætur |
|
má lengi rekja gömul spor. |
|
Þó kuldinn næði um daladætur |
|
þær dreymir allar um sól og vor. |
|
Þó kuldinn næði um daladætur |
|
þær dreymir allar um sól og vor. |
|
|