|
|
|
Við sjónarhringinn bátur bíður |
|
|
við bakkann bundinn og tíminn líður |
|
|
kolsvört dögun og eitt orð |
|
|
ertu tilbúinn að fara um borð? |
|
|
|
Við endamörkin máninn gulur |
|
|
í myrkrið skrifar fölur dulur |
|
|
spor þín telur og eitt orð |
|
|
ertu tilbúinn að fara um borð? |
|
|
| |
Ég sit við krossinn og kyssi þig |
|
|
| |
lögmál guðs í kvöl þína grafið |
|
| |
ég græt því ég veit að þú hlýtur |
|
| |
að vita að englarnir fljúga ekki í nótt |
|
| |
og leiðin liggur ekki heim. |
|
|
| |
Hvíslandi raddir hvítir sokkar |
|
| |
harður stóll þínir blautu lokkar |
|
| |
morfínhaf sem hylur taugar |
|
| |
í höfði þínu vakna draugar |
|
| |
sem finna ekki leiðina heim. |
|
|
|
|
|
Ferð þín er hafin og báturinn bíður |
|
|
sál þín eins og skuggi burtu líður |
|
|
á hvítu líni þú liggur hrein |
|
|
í nótt þú siglir frá landi ein |
|
|
og leiðin liggur ekki heim. |
|
|
|