ENG
Español
|
Deutsch
|
English
|
Íslenska
|
Italiano
|
Lëtzebuergesch
|
Nederlands
Pagpatugtog og mga chord ug pagkanta og balak
Home
Song name:
1
2
8
A
Á
B
C
D
E
É
F
G
H
I
Í
J
K
L
M
N
O
Ó
P
Q
R
S
T
U
Ú
V
W
X
Y
Ý
Z
Þ
Æ
Ö
C
C#/Db
D
D#/Eb
E
F
F#/Gb
G
G#/Ab
A
A#/Bb
B
-
►
+
C#m
4.fr
F#m
B
E
F#m/E
Eb7
4.fr
Ab
Ab7
View chords
Í musterinu
Song composer:
Torfi Ólafsson
Lyrics author:
Davíð Stefánsson
Guðaeldsins gætir
gyðja árs og friðar
Bræðralagi bindast
börn hins nýja siðar
Lífgrös lækna sárin.
Ljúfum döggum rignir
Brennivarg og böðul
barnsins andi signir.
Úti auðn og myrkur,
inni vígðar glæður
Úti örlög drottna,
inni frelsið ræður.
Úti óp og þytur,
inni mildur kliður.
Úti ógn og dauði,
inni líf og friður.
Gakk þú inn sem geisla
guðalogans þráir.
Þúsundfaldri fegurð
fyrsta skerfið spáir.
Vopnabúrin breytast
brátt í friðarhallir,
mætist mannahugir
Í musterinu- allir.
Eftir það mun enginn
eið né tryggðir svíkja.
Fjötrar munu falla,
friður drottins ríkja.
Þá mun ástareldur
ylja hverju hjarta,
jörðin glitra í geislum
guðalogans bjarta.
Go back
Nothing has been written about this song.
You must be a registered user to be able to post a message