Kvöldin eru kaldlynd úti á nesi |
|
kafaldsbylur hylur hæð og lægð |
|
kalinn og með koffortið á bakinu |
|
kem ég til þín segjandi með hægð |
|
|
|
|
|
|
|
Nóttin hefur augu einsog flugan |
|
og eflaust sér hún mig þar sem ég fer |
|
heimullega á þinn fund að fela |
|
flöskuna og mig í hendur þér |
|
|
|
|
|
|
|
Finnst þér ekki Esjan vera sjúkleg |
|
og Akrafjallið geðbilað að sjá |
|
en ef ég bið þig um að flýja með mér |
|
til Omdúrman þá máttu ekki hvá |
|
|
|
|
|
|
|
Kvöldin eru kaldlynd úti á nesi |
|
kafaldsbylur hylur hæð og lægð |
|
kalinn og með koffortið á bakinu |
|
kem ég til þín segjandi með hægð |
|
|
|
|
|
|