|
|
Ég hef saknað þín svo mikið frá því síðast er ég sá þig |
|
og ég þorði ekki að segja hvað bjó í hjarta mér. |
|
En ég get ei lengur þagað er ég horfi svona á þig |
|
því loksins hef ég skilið hvað ástarsæla er. |
|
|
Því í hvert sinn er ég sé þig er eins og birti yfir öllu. |
|
Það sem áður var svo venjulegt það breytir allt um svip. |
|
Gráir hversdagslegir dagar sem mig áður kvöldu’ af leiða, |
|
þeir fyllast nýjum ljóma í sérhvert sinn er ég sé þig. |
|
|
|
Ó vertu alltaf hjá mér, þú mátt aldrei fara frá mér. |
|
|
Ég skal vera þér eins góður og ég mögulega get. |
|
|
Því ég elska þig svo mikið að ég gæti næstum dáið |
|
|
fyrir aðeins þessa einu nótt í faðmi þér. |
|
|
Í hvert sinn er ég sé þig er eins og birti yfir öllu. |
|
Það sem áður var svo venjulegt það breytir allt um svip. |
|
Gráir hversdagslegir dagar sem mig áður kvöldu’ af leiða, |
|
þeir fyllast nýjum ljóma í sérhvert sinn er ég sé þig. |
|