Það var einu sinni bóndi sem átti hænsnabú |
|
Og ær og hest og kött og gæs og líka eina kú. |
|
En eina dimma vetrarnótt þau sváfu’ öll sætt og rótt |
|
Er svartur grimmur minkur læddist þangað ofurhljótt. |
|
|
|
Hænurnar æptu gogg, gogg, gó. |
|
|
Haninn galaði gaggala gó, |
|
|
|
|
En bóndinn svaf og hanagreyið hágrét, auminginn |
|
Er horfði hann upp á minkinn elta pútuhópinn sinn. |
|
En kisa litla sem að þarna kúrði undir vegg |
|
Hverft var við og hrökk upp er í hausinn fékk hún egg. |
|
|
|
Hænurnar æptu gogg, gogg, gó. |
|
|
|
|
Haninn galaði gaggala gó, |
|
|
|
|
En bóndinn vaknaði ekki og haninn var nú orðinn ær. |
|
Hinn illi og ljóti minkur hafði étið hænur tvær. |
|
Nú skrækti hann á bóndans hjálp og rámur æpti: Ræs |
|
Þá rumskaði í næsta kofa gömul syfjuð gæs. |
|
|
|
Hænurnar æptu gogg, gogg, gó. |
|
|
|
|
|
Gæsin gargaði bra, bra, bra, |
|
|
Haninn galaði gaggala gó, |
|
|
|
|
Og gæsin sem að átti unga lítinn þar |
|
Ekki leist á blikuna að hlusta’ á púturnar. |
|
Hún vonda minkinn hræddist og veinaði um stund, |
|
Og vakti með því kúna sem þar tók sinn fegurðarblund. |
|
|
|
Hænurnar æptu gogg, gogg, gó. |
|
|
|
|
|
Gæsin gargaði bra, bra, bra, |
|
|
|
Kýrin baulaði mö, mö, mö, |
|
|
Haninn galaði gaggala gó, |
|
|
|
|
Og beljugreyið hræddist við að heyra óhljóðin |
|
Í hænunum og reyndi að vekja bola, manninn sinn |
|
En bolinn sagði argur og hann hristi hornin sín |
|
„Hvaða bölvuð læti eru þetta kerling mín?“ |
|
|
|
Hænurnar æptu gogg, gogg, gó. |
|
|
|
|
|
Gæsin gargaði bra, bra, bra, |
|
|
|
Kýrin baulaði mö, mö, mö, |
|
|
|
|
Haninn galaði gaggala gó, |
|
|
Bóndi vinur vakna þú og ver þitt hænsnabú |
|
|
Og bolinn varð mjög úrillur og bölvaði mjög hátt: |
|
„Bannsett læti eru þetta hér um miðja nátt. |
|
Það verður strax að stöðva þetta villta hænugeim. |
|
Nú vek ég hundinn svo ég fái svefnfrið fyrir þeim.“ |
|
|
|
Hænurnar æptu gogg, gogg, gó. |
|
|
|
|
|
Gæsin gargaði bra, bra, bra, |
|
|
|
Kýrin baulaði mö, mö, mö, |
|
|
|
|
Og vakti með því hundinn. |
|
|
Hundurinn gelti voff, voff, voff, |
|
|
Haninn galaði gaggala gó, |
|
|
Bóndi vinur vakna þú og ver þitt hænsnabú |
|
|
En nú vaknaði loksins bóndinn því að hundurinn gelti hátt |
|
Og hljóp beint út með byssuna og náði minknum brátt. |
|
Svo skaut hann minkinn ljóta og hljóp svo heim með hann |
|
Og húsfreyjuna vakti og sagði: „Sjáðu hvað ég fann!” |
|
|
|
Hænurnar æptu gogg, gogg, gó. |
|
|
|
|
|
Gæsin gargaði bra, bra, bra, |
|
|
|
Kýrin baulaði mö, mö, mö, |
|
|
|
|
Og vakti með því hundinn. |
|
|
Hundurinn gelti voff, voff, voff, |
|
|
Og vakti með því bóndann. |
|
|
Haninn galaði gaggala gó, |
|
|
|
og bóndakonan hæ, hæ, hæ, |
|
|