|
|
|
þú komst til að kveðja í gær. |
|
|
Þú kvaddir og allt var svo hljótt. |
|
|
Á glugganum frostrósin grær. |
|
|
Ég gat ekkert sofið í nótt. |
|
|
|
hvert andvarp frá einmanna sál, |
|
|
hvert orð sem var myndað án hljóms. |
|
|
Nú greinist sem gaddfreðið mál |
|
|
í gervi hins lífvana blóms. |
|
|
|
|
|
|
Er stormurinn brýst inn í bæ, |
|
|
með brimgný frá klettóttri strönd. |
|
|
En reiðum og rjúkandi sæ, |
|
|
hann réttir oft ögrandi hönd. |
|
|
|
Ég krýp hér og bæn mína bið, |
|
|
þá bæn sem í hjartanu er skráð. |
|
|
Ó þyrmdu ’honum, gefðu ’honum grið, |
|
|
hver gæti mér orð þessi láð. |
|
|
|
|