Am neðstu 3 strengirnir hratt, síðan Am á 3 band og sama ,síðan á 6 band og svo aftur í venjulegt Am. |
|
|
|
|
|
Ég gekk eftir breiðstræti ástarinnar |
|
og ég sá bara hjörtu og blóð |
|
kona hrópar þú ert á leið til glötunar |
|
og í augum hennar brann undarleg glóð |
|
ég sá sjálfan mig syngja um eilífa ást |
|
er það svona sem maður á að þjást |
|
við sjónarhringinn sigldi nóttin inn |
|
svört seglin þau fylltu huga minn |
|
|
|
Ég var í sex skrefa fjarlægð frá paradís |
|
|
hjarta mitt lá í dvala undir ís |
|
|
|
|
Ég rakst á engil sem leitaði að |
|
stað til að biðja á penna og blað |
|
og saman við báðum inn á reykfylltum bar |
|
báðir í von um að fá rangt svar |
|
hugur minn fangelsi og ég finn ekki út– |
|
gönguleið og innra er allt komið í hnút |
|
breiðstræti ástar þar sem angist og sorg |
|
ástir og örlög fylltu þar torg |
|
|
|
Ég var í sex skrefa fjarlægð frá paradís ... |
|
|
Hinu megin við götuna var garður svo stór |
|
grænn á að líta og þangað ég fór |
|
ég sá fólk híma í biðröð heyrði þúsund radda klið |
|
horfði á þegar þeir opnuðu Edens hlið |
|
og massinn hann ruddist og reyndi í að ná |
|
eplin safaríku sem uxu trénu á |
|
ég sneri við og gekk út á breiðstrætið hvar |
|
gæfan kannski biði mín og hið eina rétta svar |
|
|
|
Ég var í sex skrefa fjarlægð frá paradís ... |
|