|
|
Það gefur á bátinn við Grænland |
|
og gustar um sigluna kalt |
|
en togarasjómanni tamast það er |
|
að tala sem minnst um það allt |
|
|
En fugli sem flýgur í austur |
|
er fylgt yfir hafið með þrá |
|
og vestfirskur jökull sem heilsar við Horn |
|
í hillingu’ með sólroðna brá |
|
|
|
Segir: „Velkominn heim,“ segir: „Velkominn heim“ |
|
|
|
„Sértu velkominn heim, yfir hafið og heim“ |
|
|
Þá er hlegið við störfin um borð |
|
|
|
|
|
|
En geigþungt er brimið við Grænland |
|
og gista það kýs ekki neinn |
|
Hvern varðar um draum þess og vonir og þrár |
|
sem vakir þar hljóður og einn |
|
|
En handan við kólguna kalda |
|
býr kona sem fagnar í nótt |
|
og raular við bláeygan sofandi son |
|
og systur hans þaggandi hljótt |
|
|
|
Sértu velkominn heim, sértu velkominn heim |
|
|
að vestan er siglt gegnum ís |
|
|
Sértu velkominn heim, yfir hafið og heim |
|
|
og Hornbjarg úr djúpinu rís |
|
|
og Hornbjarg úr djúpinu rís |
|
|