Close
With pictures of chords Without chords Add this song to My favourites Printable version
View chords

Konan sem kyndir ofninn minn

Song composer: Sverrir Helgason
Lyrics author: Davíð Stefánsson


C 
Eg finn það gegnum svefninn,
Em 
að einhver læðist inn
F G 
með eldhúslampann sinn,
C Am 
og veit, að það er konan,
F G7 C 
sem kyndir ofninn minn,
G 
sem út með ösku fer
C 
og eld að spónum ber
G7 
og yljar upp hjá mér,
C Am 
læðist út úr stofunni
F G7 C 
og lokar á eftir sér.
C 
Eg veit, að hún á sorgir,
Em 
en segir aldrei neitt, 
F G 
þó sé hún dauðaþreytt,
C Am 
hendur hennar sótugar
F G7 C 
og hárið illa greitt.
G 
Hún fer að engu óð
C 
er öllum mönnum góð
G7 
og vinnur verk sín hljóð.
C Am 
Sumir skrifa í öskuna
F G7 C 
öll sín bestu ljóð.
C 
Eg veit, að þessi kona
Em 
er vinafá og snauð
F G 
af veraldlegum auð,
C Am 
að launin, sem hún fær,
F G7 C 
eru last og daglegt brauð.
G 
En oftast er það sá,
C 
sem allir kvelja og smá,
G7 
sem mest af mildi á.
C Am 
Fáir njóta eldanna,
F G7 C 
sem fyrstir kveikja þá.



    Go back
Nothing has been written about this song.
You must be a registered user to be able to post a message