Stóri dagurinn, setja kapó á fjórða band. Lagið er þá í E en ég |
|
skrifa hljómana eins og það sé ekkert kapó. |
|
|
|
Ég mundi ekki eftir henni mömmu svona kátri, |
|
mér leist ekki á það þegar inn í búr hún gekk. |
|
„Hérna færðu, litli kútur, haug af súru slátri |
|
því, heillin mín, í dag þú átt að byrja í fyrsta bekk“ |
|
því, heillin mín, í dag þú átt að byrja í fyrsta bekk“ |
|
|
|
Ég kunni ekki plús og mínus, kunni ekki að stafa, |
|
kunni ekki litina og benti mömmu á það. |
|
Líklega þá vilja börnin lítið með mig hafa |
|
og lemja mig í klessu eða taka í nasabað. |
|
|
|
Mamma tók þetta ekki gilt og mig í bílinn leiddi, |
|
|
margoft sagðist ekki nenna að hlusta á þetta suð. |
|
|
„Voða sætur“, sagði hún og vandlega mér greiddi, |
|
|
„og vandræði þú leysir með að hlusta bara á Guð.“ |
|
|
„og vandræði þú leysir með að hlusta bara á Guð.“ |
|
|
Lengst í burt hún keyrði svo og leit ekki til baka, |
|
lét mig ekki einu sinni hafa nestið mitt. |
|
Þar var einmitt rúgbrauðssneið og risa skúffukaka |
|
og rúsínur já þegar ég er búinn með allt hitt. |
|
|
Feiminn gekk upp tröppurnar með fjólubláar lúffur, |
|
furðu erfitt lífið þegar allt á móti blæs. |
|
Konan sagði að fötin ættu að fara í merktar skúffur, |
|
ég fann bara aldrei mína enda ekki orðinn læs. |
|
|
Svo fór ég inn í stofu númer 508 |
|
með fiðring bæði og ógleði í litla mallanum. |
|
Furðulegur bæði var og frekar utangátta, |
|
þeim fannst ég vera skrítinn svona í útigallanum. |
|
|
Þau hlógu að mér og allt í einu hafði ég víst pissað |
|
heilmikið í buxurnar og grátansi út gekk. |
|
Mamma sko ég sagði þér að vel ég ósköp vissi að |
|
ég væri ekki tilbúinn að kenna fyrsta bekk. |
|