Close
Without images of chords Without chords Add this song to My favourites Printable version
Dm
EADgbe
FBbEbabcf
F#BEac#f#
GCFbbdg
AbC#F#bebab
ADGcea
C
EADgbe
FBbEbabcf
F#BEac#f#
GCFbbdg
AbC#F#bebab
ADGcea
Am
EADgbe
FBbEbabcf
F#BEac#f#
GCFbbdg
AbC#F#bebab
ADGcea
View chords

Bólivar

Song composer: Bubbi


Dm 
Karlar sjö úr öllum áttum
Dm Am Dm 
eiga hafnarfrí.
Dm 
Fullir inn á fyrstu knæpu
Dm Am Dm 
frjálsir menn á ný.
Dm 
Við skulum drengir drekka og slást
Dm 
dreypa á stelpurnar.
Dm 
Við sem yfir Fetlaflóa
Dm Am Dm 
fleyttum „Bólivar“.
Rambaði hann í hvítum mekki
hrikti í nagla og ró.
Kolin uppi, laus í löðri
lestin hálf af sjó.
Lekadallur djöfuls sleði
dæmdra manna far
svona út á Fetlaflóa
flaut hann „Bólivar“.
Baksaði eins og særður sjófugl
sífellt út á hlið.
Umdi og glumdi eins og smiðja
ágjöf hverja við.
Aðeins stromp og eina siglu yfir löðrið bar.
Svona var um Fetlaflóa
að fleyta „Bólivar“.
Sjó um þilfar, kol um kjalsog
kuggsins fyllti í senn.
Skinn úr lófum, frosnir fætur
feigðartrylltir menn.
Fari hann þá sem fyrst í víti
fái hann lending þar!
Loks varð bæn á Fetlaflóa
fyrir „Bólivar“.
Aldrei hvíld – í hæsta lagi
hálfmók andartak.
Ryðnaglarnir sviptust sundur
súð og þilfar lak.
Áttavitinn elti skott sitt
eins og köttur snar.
Það var syðst á Fetlaflóa
á ferð með „Bólivar“.
Skall þá yfir skell að aftan.
Skipstjórinn hló og kvað:
„Hjólið fór til vítis vinir!
Vindurnar af stað!
Festið strax úr stýrishausnum
streng á trissurnar!“
Svona loks um Fetlaflóann
fleytt var „Bólivar“.
Eins og brenglað, beyglað, hrúgald
bik og ryð í graut
baksaði hann til Bilbaó
með bilað stýri -og flaut!
Ræflum sjö á hripið lögðu
í hinsta ferðalag.
Drottins storma tókst að trompa
og taka af Ægi slag!
Karlar sjö sem voru í víti
vappa í land á ný.
Fullir inn á fyrstu knæpu
frjálsir menn á ný.
En hvernig er með eigendurna
er eigi gleði þar?
Yfir því að heim í höfn
komst hripið „Bólivar“? 



    Go back
Nothing has been written about this song.
You must be a registered user to be able to post a message