|
|
Undir gömlum árabát er næturstaður manns. |
|
Kassi merktur tuborgöli er eina mublan hans. |
|
Hann stundar ekki vinnu, bara betlar lítið eitt. |
|
Í bláleitt glas af kogara er hverri krónu eytt. |
|
|
Fátt eitt skiptir máli og hann fréttir aldrei neitt. |
|
Furðulega rólegur samt er hann yfirleitt. |
|
Fólki því sem finnst hann vera róni og flökkudýr |
|
er einnig fjarlægt bálið sem í brennivíni býr. |
|
|
Hann átti eitt sinn fjölskyldu, já bæði bíl og hús. |
|
Bakkus tók það frá honum, nú eru þeir tveir dús. |
|
Fólki er svo sem sama þótt róni spræni í brók |
|
og stolt hans var það fyrsta sem hann Bakkus gamli tók. |
|
|
|
Du ru ru du ruru, du ru ru du duru ru |
|
|
Du ru ru du ruru, du ru ru du duru ru |
|
|
Þó er það svo afstætt hver er aumingi og svín. |
|
Á dómsins æðsta degi drekkur róninn máski vín |
|
við háborðið með Pétri og himnafeðgunum. |
|
Í hlýju þornar hlandið úr rónabuxunum. |
|
|
|
La ra la ra lara, la ra la la lara la |
|
|
La ra la ra lara, la ra la la lara la |
|
|
|
La ra la ra lara, la ra la la lara la |
|
|
La ra la ra lara, la ra la la lara la |
|
|
|