Við bisuðum gjarnan saman við tveir Birkiland og ég. |
|
Í borgina tróðum glapstigu og margan gæfulausan veg. |
|
Við seldum litla bæklinga og salan hún var treg. |
|
En sumrin í Vatnsmýrinni voru hlý og yndisleg. |
|
|
Við gengum saman marga villigötu fram á nótt. |
|
Við gerðum skurk um næturþelið, þegar allt var orðið hljótt. |
|
Við vorum hundeltir og okkur gert margt óseigjanlega ljótt. |
|
Og að því búnu þá var lögreglan á okkur sótt. |
|
|
|
Það er ekki mikið trúlegt, nokkur öfundi þig. |
|
|
Samt ertu sá sem mestu flugi náði. |
|
|
Því ægilegustu þrautir þér riðu á slig. |
|
|
Það var ei neinn sem slíka styrjöld háði. |
|
|
Við vorum sviknir um stelpur sem við stóluðum lengi á. |
|
Við höfðum staðið í skilum með innborganir. Já og þær ekkert smá. |
|
Við vorum píndir í afvötnun inn við “sundin blá”. |
|
Við fórum út þaðan hálfu verri og skelltum okkur beint á krá. |
|
|
|
Já það var mörg árstíðin í æfi þinni sem fór |
|
|
Í auðnuleysisráf á afvegum slíkum. |
|
|
En hvað sem verð ég lítill. Já hvað sem verð ég stór. |
|
|
Ég klæðist samt aldrei alveg þínum flíkum. |
|
|
Þú varst undarlegur í háttum. Það sinnti engin um þín kvein. |
|
Allir önnum kafnir við að græða á stríðinu öll sín mein. |
|
Þú varst sérlundaður furðufugl og þú sast á stakri grein |
|
Þótt þú sæir aldrei móður þína kyssa jólasvein. |
|