Undir bláhimni blíðsumars nætur |
|
barstu’ í arma mér rósfagra mey. |
|
Þar sem döggin í grasinu grætur, |
|
gárast tjörnin í suðrænum þey. |
|
|
|
Eg var snortinn af yndisleik þínum, |
|
|
ástarþráin er vonunum felld. |
|
|
Þú ert ljósblik á lífshimni mínum, |
|
|
þú er ljóð mitt og stjarna í kveld. |
|
|
Eg vil dansa við þig, meðan dunar |
|
þetta draumblíða lag, sem eg ann. |
|
Meðan fjörið í æðunum funar |
|
af fögnuði hjartans, er brann. |
|
|
|
Og svo dönsum við dátt, það er gaman, |
|
|
meðan dagur í austrinu rís. |
|
|
og svo leiðumst við syngjandi saman |
|
|
|
Já, út í sumarsins paradís |
|