Nú andar suðrið sæla vindum þýðum. |
|
Á sjónum allar bárur smáar rísa |
|
og flykkjast heim að fögru landi ísa, |
|
að fósturjarðar minnar strönd og hlíðum. |
|
|
Ó, heilsið öllum heima rómi blíðum |
|
um hæð og sund í drottins ást og friði. |
|
Kyssið þið, bárur, bát á fiskimiði. |
|
Blásið þið, vindar, hlýtt á kinnum fríðum. |
|
|
|
Vorboðinn ljúfi, fuglinn trúr sem fer, |
|
|
með fjaðrabliki háa vegaleysu |
|
|
í sumardal að kveða kvæðin þín, |
|
|
|
Heilsaðu einkum, ef að fyrir ber |
|
|
engil með húfu og rauðan skúf, í peysu. |
|
|
Þröstur minn góður, það er stúlkan mín. |
|