Close
With pictures of chords Without chords Add this song to My favourites Printable version
View chords

Gleraugun hans afa

Song composer: Emmerich Imré Kálman


(Lag: Komdu inn í kofann minn)
B7 
Til himins upp hann afi fór,
Am 
en ekkert þar hann sér.
D7 
Því gleraugunum gleymdi hann
í glugganum hjá mér.
Hann sér ei neitt á bréf né bók
Em C#dim 
né blöðin sem hann fær.
E7 Am 
Hann fer í öfug fötin sín
D7 
svo fólkið uppi hlær.
Þótt Biblíun hafi hann
sem hæst í skápnum er,
hann finnur ekki augun sín
og enga línu sér.
Á himnum stúlka engin er
hjá afa, líkt og ég,
sem finni stafinn fyrir hann
og fylgi út á veg.
Hann afi sögur sagði mér
um svartan skógarbjörn,
sem ætti fylgsni úti í skóg
og æti stundum börn.
Því birnir ætu óþæg börn,
-en ekki Nonna og mig.
En þægu börnin þyftu samt
á þeim að vara sig.
Ó, flýt þér, mamma, og færðu mig
í fína kjólinn minn.
Svo verð ég eins og engilbarn,
fer upp í himininn.
Og reistu stóra stigann upp
og styð við himininn.
Svo geng ég upp með gleraugun,
sem gleymdi hann afi minn.



    Go back
Nothing has been written about this song.
You must be a registered user to be able to post a message