Ég lifi’ í draumi dreg hvergi mörkin dags og nætur |
|
sveiflast aðeins ósjálfrátt |
|
Í hægum gangi á fullt í fangi með að finna það |
|
sem oftast reynist öfug átt. |
|
|
|
Það er líkt og ég sé laus úr öllum viðjum |
|
|
lentur hringsólandi á vegi miðjum. |
|
|
Ég lifi í draumi dreg hvergi mörkin dags og nætur |
|
|
sveiflast aðeins ósjálfrátt. |
|
|
Ég lifi í tómi tek engan þátt í trylltum dansi |
|
fólksins allt í kringum mig. |
|
Aleinn á randi veit að minn vandi er að vera þar |
|
sem enginn getur áttað sig. |
|
|
|
Það er líkt og ég sé lagstur út í bili |
|
|
leitandi að báti á réttum kili. |
|
|
Ég lifi í tómi tek engan þátt í trylltum dansi |
|
|
fólksins allt í kringum mig. |
|
|
Ég lifi í veröld veit ekki hvaðan vindar þjóta, |
|
en þeir fara fram hjá mér. |
|
Einskonar fangi á víðavangi eða varnarlaus |
|
gegn því sem er á meðan er. |
|
|
|
Það er líkt og ég sé lamaður af ótta. |
|
|
Líf mitt rennur burt á hröðum flótta. |
|
|
Ég lifi í veröld veit ekki hvaðan vindar þjóta |
|
|
en þeir fara framhjá mér. |
|