Milli jóla og nýárs um nótt við komum, |
|
í nístingskulda, slyddu og éli'. |
|
Syneta hét skipið sem skreið við landið, |
|
með skaddað stýri og laskaða vél. |
|
|
Við austurströndina stóðum á dekki, |
|
störðum í sortans kólguský, |
|
drunur brimsins bárust um loftið, |
|
bæn mín drukknaði óttanum í. |
|
|
|
Innst í firðinum sáum við ljósin lýsa, |
|
|
ljósin sem komu þorpinu frá, |
|
|
um síðir þau hurfu í hríðina dökku, |
|
|
um hjörtu okkar flæddi lífsins þrá. |
|
|
Þessa nótt skipið á Skrúðnum steytti, |
|
skelfing og ótti töku öll völd. |
|
Í bátana komumst við kaldir og þreyttir, |
|
í kolsvarta myrkri beið aldan köld. |
|
|
Þá nótt við dóum, drottinn minn góður, |
|
drukknuðum bjarg'lausir einn og einn. |
|
Himinn og haf sýndust saman renna, |
|
okkar síðasta tak var brimsorfinn steinn. |
|
|
|
Innst í firðinum sáum við ljósin lýsa, |
|
|
ljósin sem komu þorpinu frá, |
|
|
um síðir þau hurfu í hríðina dökku, |
|
|
um hjörtu okkar flæddi lífsins þrá. |
|
|
Í þangi við fundumst, en fimm ennþá vantar, |
|
fjörunni aldan skilaði oss, |
|
í hús á börum við bornir vorum |
|
með bláa vör eftir öldunnar koss. |
|
|
Ef þú siglir um sumar, vinur, |
|
og sérð við Skrúðinn brimsorfin sker, |
|
viltu biðja þeim fyrir er fórust, |
|
þeim fimm sem aldrei skiluðu sér. |
|