|
|
|
|
Það skrifað stendur skýrt í Biblíunni |
|
að skylt oss sé að virða náungann |
|
og elska hann af hjartans dýpsta grunni |
|
cvo hann í staðinni læri’að elska mann |
|
|
|
En gallinn er að þetta er bölvað blaður |
|
|
og bull sem hvergi er hægt að finna stað |
|
|
Það elskar mann sko ekki nokkur maður |
|
|
nema ef að maður sjálfur skyldi gera það |
|
|
Í fyrri tíð ég forðaðist þann skolla |
|
að fást við það sem Bretum þótti ljótt |
|
Þó dátar þeirra brytu alla bolla |
|
í búrinu hjá mömmu eina nótt |
|
|
|
Og seinna þegar frelsisskrá var fengin |
|
|
ég fríríkinu allrar gæfu bað |
|
|
En samt ég veit það elskar mann sko enginn |
|
|
nema ef að maður sjálfur skyldi gera það |
|
|
Vvort líf í þessum lægri millistéttum |
|
er lítið skárra en það forðum var |
|
Vér stöndum ennþá eins og fé í réttum |
|
og einskis bíðum nema slátrunar |
|
|
|
Því leyfi ég mér að segja enn og aftur |
|
|
sem er þó fyrir löngu margsannað: |
|
|
Það elskar mann sko ekki nokkur kjafur |
|
|
nema ef að maður sjálfur skyldi gera það |
|
|
Því leyfi ég mér að segja enn og aftur |
|
|
sem er þó fyrir löngu margsannað |
|
|
Það elskar mann sko ekki nokkur kjafur |
|
|
nema ef að maður sjálfur skyldi gera það |
|
|
|
Nema ef að maður sjálfur skyldi gera það |
|