|
|
Hvers vegna eru lög og regla |
|
til að fela hitt og þetta? |
|
Blóðug spor og handjárn smella |
|
skýrslur segja: „Hann var alltaf að detta.” |
|
|
|
Börðu hann í bílnum með kylfum og hnúum |
|
|
hædd’ann og svívirtu með tungum hrjúfum |
|
|
Ekkert sást nema lítið mar |
|
|
þetta var slys við vorum ekki þar. |
|
|
Við heyrðum hann kalla, biðja um vatn, |
|
kvartaði líka um honum væri kalt. |
|
Seinna um nóttina talaði út í bláinn. |
|
það var ekki fyrr í morgun að við sáum að hann væri dáinn. |
|
|
|
Ekki benda á mig, segir varðstjórinn. |
|
|
Þetta kvöld var ég að æfa lögreglukórinn, |
|
|
Spyrjið þá sem voru á vakt. |
|
|
Ég ábyrgist þeir munu segja satt. |
|