|
|
Þú varst kaldur og kyrrðin þig þakti |
|
konulausan og tími þinn leið. |
|
Regnvotar götur og gljáandi stræti |
|
gátu aðeins aukið þína neyð. |
|
|
|
Þú sást á vappi vængjaða skugga |
|
|
voteyga með hvít augnahár |
|
|
og dvergvaxið frík með fölgræn augu |
|
|
og feitan trúð er seldi börnum tár. |
|
|
Já, blásvartir hrafnar í hjartanu búa |
|
þar hoppa þeir og krunka lágt, |
|
því síst af öllu vildu þeir vekja |
|
vitund þína um miðja nátt. |
|
|
|
Og þú skynjar í skelfingu þinni |
|
|
skyndilega verður allt ljóst. |
|
|
Ósnortin liggur gáta þín grafin |
|
|
í götunni þar sem þú áður bjóst |
|
|
Hvar áttu að leita, liggur ekki fyrir, |
|
leyndarmálið er vel geymt. |
|
Gamli hrollurinn þig heltekur aftur |
|
í hverri íbúð þar er reimt. |
|
|
|
Fékkst þér í pípu og púaðir stórum, |
|
|
pírðir augun, sljó og rauð |
|
|
heila þínum vafðir í fjólublátt flauel |
|
|
fannst tilveran vera grá og snauð |
|
|
Já, borgin er full af draugum, drengur, |
|
sem í dimmum skotum oft þar sjást, |
|
þeir töpuðu æskunni og ellinni líka |
|
og eiga barasta skilið að þjást. |
|
|
|
Í myrkrinu augun þín æla ljósi |
|
|
ísaköld birtan var hrímgrá |
|
|
þínar eigin hugsanir halda þér föstum |
|
|
og höggva þig niður aftan frá. |
|
|
|