|
|
| G | C | G | C | G | Ég | held það leiki | varla neinn | vafi' | á | því |
|
| D | G | D7 | G | D7 | að | nú er vorið | komið með | kurt | og | pí. |
|
| G | D | G | D | Það heilsar blítt að | gömlum og | góð | um | sið |
|
| Em | C | G | C | G | og | dátt er blessað | lognið um | lág | nætt | ið. |
|
|
Í túni sefur kýrin og kálfurinn. |
|
Í gili sefur krummi með gogginn sinn. |
|
Í lautu sefur tófan með loðið skinn. |
|
Í rúmi sefur barnið með rjóða kinn. |
|
|
Í fjalli sefur örninn á efstu brún. |
|
Í hólma sefur æður í æðardún. |
|
Í skógi sefur þröstur með þreyttan væng |
|
og heima sefur barnið með hlýja sæng. |
|
|
Á priki sefur haninn með hanastél. |
|
Á steini sefur krían á kríumel. |
|
Í haga sefur folinn og hann er grár, |
|
og heima sefur barnið með glóbjart hár. |
|
|
Í fjöru sefur máfur við fjöruborð. |
|
Í hylnum sefur lontan með lítinn sporð. |
|
Á þúfu sefur spói á spóamó. |
|
Á kodda sefur barnið í kyrrð og ró. |
|