| Ab | Abdim | Bbm7 | Eb7 | Ég er | kokkur á | kútter frá | Sandi. | |
|
| Bbm7 | Eb7 | Ab | Ég fæ | kjaftshögg hvern | einasta | dag. |
|
| Abdim | Cm | C7 | Og ekki líður mér | betur í | landi, | |
|
| Fm7 | Bb7 | Bbm7 | Eb7 | ef ég | lendi við | konuna í | slag. | |
|
| Ab | Abdim | Bbm7 | Eb7 | Hún er | tvígild að | afli hún | Tóta | |
|
| Bbm7 | Eb7 | Ab | og ég | tala' ekki | um sé hún | reið, |
|
| Ebm7 | F7 | Bb7 | enda | tek ég þá | fljótast til | fóta, |
|
| Bbm7 | Eb7 | Ab | því | flótti' er sú | einasta | leið. |
|
|
Ég var var ungur er Tóta mig tældi, |
|
okkar trúlofun samstundis birt. |
|
Og í hjónaband þvínæst mér þvældi, |
|
það var óveðursblandið og stirt. |
|
Því þegar frá leið hljóp fjandinn í svínið, |
|
og fædd voru ellefu börn, |
|
þá var búið með gaman og grínið, |
|
þá var grátur mín síðasta vörn. |
|
|
Því á kvöldin er kjaftshöggin dundu, |
|
svo í kjammana báða mig sveið |
|
og tárin af hvörmum mér hrundu |
|
þegar hræddur undir rúmið ég skreið. |
|
Já, þá skemmti hún sér skjátan sú arna |
|
er hún skammirnar dynja á mér lét, |
|
meðan ég hímdi hundflatur þarna |
|
og hreyfði mig ekki um fet. |
|
|
En á kútternum allir sig krossa |
|
ef ég kem fram með viðbrenndan graut |
|
og skipstjórans brástjörnur blossa |
|
meðan bölvar rétt eins og naut. |
|
Og ef kjötsúpan virðist með kekkjum, |
|
eða kjötbollan reynist of hrá, |
|
þeir kenna slíkt helvískum hrekkjum, |
|
svo hefst skemmtunin vöngum mér á. |
|
|
Ef ég lifað fæ lengur en Tóta, |
|
er hún leggur á eilífðarbraut, |
|
skal ég dansa og daganna njóta |
|
og elda dýrindis rúsínugraut. |
|
En mig hryllir, ef hittumst við aftur, |
|
er ég héðan af jörðinni fer, |
|
nema einhver mér ókunnur kraftur |
|
komi óðar og liðsinni mér. |
|