Hvað er það sem fær þig til að labba búð úr búð? |
|
Þreytuleg á útsölum, meðan kalinn dormar undir súð. |
|
Organdi krakkar, sem heimta að fara heim, |
|
þig dreymir um að stinga af gleyma honum og þeim. |
|
Þú ert lifandi kviksett ekkert getur gert, |
|
nema þú brjótir af þér hlekkina, heimtir þinn rétt. |
|
|
Slefandi af losta, þeir leita að þér með tólin í hönd. |
|
Fastan drátt og kaffi í rúmið, hneppa þeir þig í bönd. |
|
Honum er sama þótt þú sért þreytt og sveitt, |
|
hann kvartar yfir því að kjötið sé of feitt. |
|
Þú átt eftir að baða ormana, varska upp eftir mat, |
|
er þú skríður uppí rúmið hann heimtar þitt gat. |
|
|
|
|
Aldrei átt þú frídag, skríður um með klafann á baki. |
|
Frá sunnudegi til sunnudags, þú ert þræll, hann er þinn maki. |
|
Svo gerðu þér greiða ef þú ert orðin leið, |
|
komdu þér út úr húsinu, allt er leyfilegt í neyð. |
|
Hann getur sjálfur séð um börnin og þvegið sinn þvott, |
|
komdu þér út úr húsinu, komdu þér á brott, komdu þér á brott. |
|