Kveða ég vil um víking þann sem vestur í Selsvör forðum bjó. |
|
Röskur á sjóinn röri hann, rauðmaga upp úr honum dró. |
|
Í afla sat hann af öllum bar og oft er hann hlaðinn kom til lands |
|
All fyrir sakir öfundar að honum veittust grannar hans. |
|
|
|
Þá var nú glott, og þá var nú hlegið, |
|
|
þá var nú slegið títt og fast |
|
|
Kónarnir undan Hoffmanns hnefum |
|
|
hrukku þar allir tvist og bast. |
|
|
Á veturna þegar vestansjór veltist um nesið Seltjarnar. |
|
Á haugana gamla hetjan fór hirti þar dýrar gersemar. |
|
En eitt sinn, er nótt var orðin dimm, og aftur hann snöri heim til sín, |
|
úr launsátri þustu þrjótar fimm. Þeir höfðu drukkið brennivín. |
|
|
|
Þá var nú glott, og þá var nú hlegið ... |
|
|
| | Til Kaupmannahafnar hann kom eitt sinn að kynna sér selskapslífið | þar. |
|
Fasmikill gekk hann út og inn um öldrykkjustofur Nýhafnar. |
|
Þá hópuðust bófar honum að, og hnífa þeir drógu slíðrum úr. |
|
En vígreifur gamli kappinn kvað “Jeg kalder ej alt min Bedstemor! |
|
|
|
Þá var nú glott, og þá var nú hlegið ... |
|
|
Já, hann var við alla hreinn og beinn og hlaut enda mikla frægð af því |
|
rota til hans gamans einn og einn ósvífinn valdsmann og pólití. |
|
Og eitt sinn, er sótti á hans fund útlendra dáta regíment, |
|
þá misstu þeir sína meðvitund margir í einu-ganske pent. |
|
|
|
Þá var nú glott, og þá var nú hlegið ... |
|
|
Nú hef ég kveðið kruss og þvers kveðið samt gæti ég ennþá nóg |
|
um vaskleik og dirfsku víkings þess sem vestur í Selsvör forðum bjó. |
|
Vetur, sumar, vor og haust varð hann að heyja einn sín stríð |
|
við sína fjendur linnulaust líkt eins og Grettir eina tíð. |
|
|
|
Þá var nú glott, og þá var nú hlegið ... |
|