Litlir kassar á lækjarbakka, |
|
litlir kassar úr dinga-dinga-ling. |
|
Litlir kassar, litlir kassar, |
|
litlir kassar, allir eins. |
|
|
Einn er rauður, annar gulur, |
|
þriðji fjólublár og fjórði röndóttur |
|
allir búnir til úr dingalinga, |
|
enda eru þeir allir eins. |
|
|
|
ungir námsmenn sem ganga í háskóla, |
|
sem lætur þá inn í litla kassa, |
|
|
|
Þeir gerast læknar og lögfræðingar |
|
og landsbankastjórnendur, |
|
og í þeim öllum er dingalinga, |
|
enda eru þeir allir eins. |
|
|
Þeir stunda sólböð og sundlaugarnar |
|
|
og eignast allir börn og buru |
|
og börnin eru skírð og fermd. |
|
|
Og börnin eru send í sveitina |
|
og síðan beint í Háskólann |
|
sem lætur þau inn í litla kassa |
|
og út úr þeim koma allir eins. |
|
|
Og ungu mennirnir allir fara |
|
út í bisness og stofna heimili, |
|
og svo er fjölskyldan sett í kassa, |
|
solitla kassa, alla eins. |
|
|
Einn er rauður, annar gulur, |
|
þriðji fjólublár og fjórði röndóttur |
|
allir búnir til úr dingalinga, |
|
enda eru þeir allir eins. |
|
|
Litlir kassar á lækjarbakka, |
|
litlir kassar úr dinga-dinga-ling. |
|
Litlir kassar, litlir kassar, |
|
litlir kassar, allir eins. |
|
|
Litlir kassar á lækjarbakka |
|
að lokum tæmast og fólk sem í þeim bjó |
|
er að sjálfsögðu sett í kassa. |
|
Svarta kassa og alla eins. |
|