Close
Without images of chords Without chords Add this song to My favourites Printable version
Bm
EADgbe
FBbEbabcf
F#BEac#f#
GCFbbdg
AbC#F#bebab
ADGcea
F#m
EADgbe
FBbEbabcf
F#BEac#f#
GCFbbdg
AbC#F#bebab
ADGcea
View chords

Krummi svaf í klettagjá

Song composer: Þjóðlag
Lyrics author: Jón Thoroddsen


Bm 
Krummi svaf í klettagjá,
kaldri vetrarnóttu á
F#m Bm 
verður margt að meini, verður margt að meini,
Bm 
fyrr en dagur fagur rann
freðið nefið dregur hann
F#m Bm 
undan stórum steini, undan stórum steini.
Bm 
Allt er frosið úti gor,
ekkert fæst við ströndu mor,
F#m Bm 
svengd er metti mína, svengd er metti mína,
Bm 
ef að húsum heim ég fer
heimafrakkur bannar mér
F#m Bm 
seppi’ úr sorpi’ að tína, seppi’ úr sorpi’ að tína.
Bm 
Öll er þakin ísi jörð,
ekki séð á holtabörð
F#m Bm 
fleygir fuglar geta, fleygir fuglar geta,
Bm 
en þó leiti út um mó,
auða hvergi lítur tó;
F#m Bm 
hvað á hrafn að éta, hvað á hrafn að éta?
Bm 
Á sér krummi ýfði stél,
einnig brýndi gogginn vel,
F#m Bm 
flaug úr fjallagjótum, flaug úr fjallagjótum,
Bm 
lítur yfir byggð og bú,
á bæjum fyrr en vakna hjú,
F#m Bm 
veifar vængjum skjótum, veifar vængjum skjótum.
Bm 
Sálaður á síðu lá
sauður feitur garði hjá,
F#m Bm 
fyrrum frár á velli,  fyrrum frár á velli,
Bm 
 „Krúnk, krúnk! nafnar, komið hér!
krúnk, krúnk! því oss búin er
F#m Bm 
krás á köldu svelli, krás á köldu svelli.“



    Go back
Nothing has been written about this song.
You must be a registered user to be able to post a message